Áhugahópur um guðfræðiráðstefnur stóð fimmta árið í röð fyrir spennandi haustráðstefnu í samstarfi við Kjalarnesprófastsdæmi. Ráðstefnan var 29.-30. ágúst í Háteigskirkju í Reykjavík.
Að þessu sinni var áherslan lögð á Sálgæslu annars vegar og helgihald hins vegar. Dr. Carla Dahl sem er yfir Sálgæslufræðum hjá Luther Seminary í St. Paul Minnesota, vinsæl sem fyrirlesari og kennari auk þess að vera reyndur þerapisti, kennir á ráðstefnunni. Fyrirlestrar hennar fjölluðu um Sálgæslu frammi fyrir margþættri sorg.
Jodi Björnstad Houge prestur kirkjunnar Humblewalk kirkjunnar í St. Paul Minnesota leiddi helgihald og flutti fyrirlestur um að virkja söfnuðinn til einlægrar og skapandi þátttöku í helgihaldinu. Jodi og samfélagið í Humblewalk hefur gott lag á að glæða hefðbundna messuliði nýju lífi.
Tónlistarmaðurinn Nate Houge, eiginmaður Jodi, leiddi tónlist í helgihaldinu og kynnti þátttakendur fyrir nýjum sálmum og tónlist.
Dagskrá ráðstefnunnar
Fimmtudagur 29. ágúst
09:00-09:40 Morgunverður og skráning
09:40-10:00 Helgistund með Jodi og Nate Houge
10.00-11.45 „Ambiguous Loss“ Part 1– Dr. Carla M Dahl
12.00-13.00 Hádegisverður
13.00-14.30 Um helgihald – Jodi Houge
Föstudagurinn 30. ágúst
09:00-09:40 Morgunverður og skráning
09:40-10:00 Helgistund með Jodi og Nate Houge
10.00-11.45 „Ambiguous Loss“ Part 2 – Dr. Carla M Dahl
12.00-13.00 Hádegisverður
13.00-14.30 Tilraunahelgihald með Jodi og Nate Houge
Stýrihópur fyrir heimsókn Carla, Jodi og Nate
Arndís G. Bernhardsdóttir Linn, Guðni Már Harðarson, Halldór Elías Guðmundsson, Hildur Björk Hörpudóttir og Jóhanna Gísladóttir.