Ráðstefna með Nadia Bolz-Weber, Jodi Houge og Jacqueline Bussie var haldin í Ástjarnarkirkju í Hafnarfirði mánudaginn 21. og þriðjudaginn 22. ágúst 2023. Ráðstefnan var að þessu sinni haldin af Prestafélagi Íslands með styrk frá Starfsþróunarsetri BHM.

Dagskrá ráðstefnunar hófst með morgunverðarhlaðborði og helgihaldi kl 9:00 báða dagana. Boðið var upp á hádegisverð og dagskrá lauk kl 15:00 bæði á mánudag og þriðjudag.

Kjalarnesprófastsdæmi og Áhugafélag um guðfræðiráðstefnur aðstoðuðu Prestafélag Íslands við heimsókn Nadia Bolz-Weber, Jodi Houge og Jacqueline Bussie til Íslands.

Leading Through Challenging Times

Unpredictability, Anxiety, and Jesus

Mánudagur 21. ágúst

09:00-09:45  Skráning og morgunverður

09:45-10:00  Orð og bæn

10:00-10:45  Creating Trust and Community – Jodi Houge

10:45-11:00  Kaffihlé

11:00-12:00  Jesus and Anxiety – Nadia Bolz-Weber

12:00-12:15  Q&O – Nadia Bolz-Weber

12:15-13:15  Hádegisverður

13:15-14:15  When Everything Changes – Jacqueline Bussie

14:15-14:30   Q&A – Jacqueline Bussie

14:30-15:00  Insights and Important Thoughts – Jodi Houge

HLÉ

17:00-18:30  Guðsþjónusta með altarisgöngu (opin almenningi)

Prédikari: Nadia Bolz-Weber

Þriðjudagur 22. ágúst

09:00-09:30  Skráning og morgunverður

09:30-09:45  Orð og bæn

09:45-10:30  Leading Anxious People –  Jodi Houge

10:30-10:45  Kaffihlé

10:45-11:45  Love Without Limits – Jacqueline Bussie

11:45-12:00  Q&A – Jacqueline Bussie

12:00-13:00  Hádegisverður

13:00-14:00  Preaching through Difficult Texts – Nadia Bolz-Weber

14:00-14:15  Q&O – Nadia Bolz-Weber

14:15-14:45  Insights and Important Thoughts – Jodi Houge

14:45-15:00  Lokablessun

Nadia Bolz-Weber er einn þekktasti guðfræðingur Bandaríkjanna, nýtur mikilla vinsælda á samfélagsmiðlum, kemur oft fram í fjölmiðlum og er víðförull fyrirlesari. Nadia hefur djúpa þekkingu á játningum og aldagömlum kenningum kirkjunnar en er jafnframt tattúveraður strigakjaftur sem er allt í senn, fangaprestur, andlegur ráðgjafi Hollywood stjarna og vinsæll fyrirlesari þvert á kirkjudeildir. Nadia er aktívísti fyrir félagslegu réttlæti og hefur skrifað bækur sem náð hafa inn metsölulista NY Times. Nadia er góður kennari í predikunarfræðum en um leið með ferska nálgun í prestsþjónustu. Hún kemur nú til Íslands í annað sinn.

Jodi Houge er prestur Humble Walk kirkjunnar í St. Paul Minnesota. Jodi lauk embættisnámi frá Luther Seminary og stofnaði skömmu síðar Humble Walk kirkjuna í hverfinu sínu eftir hvatningu frá nágrönnum sínum. Jodi er þekkt fyrir að fara ótroðnar slóðir í kirkjustarfi um leið og hún sýnir lútherski trúarhefð og helgihaldi virðingu. Jodi er skapandi í nálgun sinni og hefur mótað gagnvirkt samfélag þar sem list, félagseflandi verkefni, sagnalist, föndur, nýsköpun í sálmum og söng eru notuð til að miðla fagnaðarerindinu. Þetta er í þriðja sinn sem Jodi heldur erindi á guðfræðiráðstefnu á Íslandi.

Jacqueline Aileen Bussie er doktor í sálgæslu. Þegar hún var 27 ára, skrifaði hún doktorsritgerðina The laughter of the Oppressed.  Jurgen Moltmann las ritgerðina og sagði hana meistaraverk og James Cone einn af frumkvöðlum Black Theology og Black Liberating Theology hefur sagt ritgerðina skyldulesningu. Jacqueline er einstakur kennari og fyrirlesari og hefur skrifað bækur sem unnið hafa til verðlauna og miðla guðfræði á hátt sem ná til almennings í gegnum skemmtilegan, ögrandi og persónulegan frásagnastíl. Jacqueline þurfti svo óvænt sjálf á mikilli sálgæslu að halda þegar hún kom í 50 ára afmælisferð til Íslands 2021. En eiginmaður hennar varð bráðkvaddur í skoðunarferð á Sólheimajökli. Í kjölfarið naut Jacqueline góðs af tengslum vina hennar við Þjóðkirkjuna og fékk stuðning úr óvæntri átt á erfiðum tímum.